Blogg
25.5.2010
Stuðlar - Ættir
|
6.5.2010
Fyrirhugað álver Alcoa við Bakka
Ljóst er að reiðleiðin út í Bakka verður ekki nothæf eins og hún er núna því framkvæmdasvæði hins fyrirhugaða álvers nær yfir meginpart leiðarinnar eins og sést á myndinni hér að ofan. Hér bætti ég við með rauðum lit núverandi leið. Þó má geta þess að ekki er búið að hanna lokaútlitið á álverinu og er því stuðst við útlit álver Alcoa Fjarðaráls á Reyðarfirði á þessum myndum ef ég man rétt. Í niðurstöðum skýrslunnar á mati á áhrifum á gróður og dýralíf segir; "Áhrif á gróður og dýralíf eru frá því að vera nokkuð neikvæð innan þynningarsvæðis næst álverinu til óveruleg". Ennfremur að "hætta á eitrunaráhrifum á grasbíta er mjög lítil".
Hér að neðan er önnur mynd.
Framtíðarsvæði hestamanna á Húsavík er þó hugsað í landi Saltvíkur svo það sé ljóst í þessum pælingum. Hestamannafélagið Grani er að berjast fyrir því að koma hesthúsabyggð á aðalskipulag Norðurþings svo hægt verði að hefja framkvæmdir þar. En hvenær hestamenn munu flytja sig úr Traðagerði í Saltvík verður að koma í ljós. Byggja þarf nýja byggð frá grunni og ekki er víst að allir geti farið í svo stóra fjárfestingu á næstu árum.
Að lokum bendi ég á að álverið mun ekki sjást þegar komið er til Húsavíkur að sunnan. Þó verða mjög sýnileg tvö 38 metra breið og 46 metra há súrálssíló sem munu standa við hina nýju höfn sem kemur norðan við nýja garðinn. Sjá afstöðumyndir hér að neðan, önnur tekin fyrir ofan Baukinn og hin af sjó. Vil taka fram að á myndina vantar færiböndin upp á tankana sem flytja súrálið ofaní tankana.
Að lokum vil ég benda á að hægt er að skoða skýrsluna í heild sinni á þessari slóð http://www.alcoa.com/iceland/ic/info_page/bakki.asp
20.4.2010
Gamla myndin - Feðgar á ferð
Þessar myndir eru teknar vestan við Pálshús (líklega um 1972) þar sem Haraldur og Valgerður og synir þeirra bjuggu. Þess má geta að algengt var að menn riðu heim til sín í kaffi eða mat og geymdu þá hestana í garðinum. Hesthús Haraldar var þá úti á Höfða þar sem nú stendur vélageymsla Eyþórs Hemmerts frænda okkar.
Á fyrstu myndinni til vinstri eru þeir feðgar og nafnar, Haraldur Gíslason og Haraldur Haraldsson, sá eldri eru á hesti sínum Lýsingi sem var afburða litfallegur hestur og Haraldur yngri á þeim fræga hesti Freyfaxa frá frænda okkar Haraldi á Breiðumýri. Þess má geta að Freyfaxi var einstakur, góður reiðhestur og þægur og traustur fyrir hvern sem er. Hann var mikið notaður í reiðskólanum hér áður fyrr. Hægra megin uppi er Gísli á hesti frá Þórarni í Skarðaborg sem hann var að temja.
Á myndinni hægra megin niðri má sjá þá feðga saman, Halla Har, Harald Gísla, Stefán og Gísla. Tveir síðastnefndu eru í félagsbúningi Grana sem þá var. Eins og allir vita þá stunda Gísli og Stefán enn hestamennsku og rækta hross.
5.4.2010
Tamningar
Tamningar ganga vel. Við fórum í dag og mynduðum Hraunar og Hellu. Hér að neðan má sjá afraksturinn.
Stefnt er á úrtöku fyrir Landsmót með þessi hross. Þess ber að geta að Hella er ekki mikið gerð þó lofandi sé. Hella var gangsett fyrir um þrem vikum og lofar mjög góðu. Svo verður að koma í ljós hvort það dugar inn á Landsmót. Hún er 5 vetra og lágmarkið fyrir 5 vetra hryssur á Landsmót er 8.10.
Hraunar er í góðri framför frá í fyrra. Hann hefur eflst á öllum gangtegundum og þá sérstaklega á brokki. Lágmörk fyrir 6 vetra hesta á Landsmót er 8.30 og höfum við trú á því að Hraunar nái því.
Nánari upplýsingar um Hraunar eru í flipanum "Stóðhestar" hér í valmyndinni að ofan.
.
Hella Rökkvadóttir
29.3.2010
Gamla myndin - Granavöllur 1986
Á þessari mynd má sjá Gísla taka við verðlaunum frá Sigurði Hallmarssyni á Granavelli 1986. Gísli er á Víði frá Víðivöllum. Víðir var kosinn glæsilegasti hestur mótsins og vann B-flokk gæðinga. Víðir var Júpíterssonur, hágengur og viljugur. Júpíter var undan Sörla frá Sauðárkróki og Venus frá Reykjum.
Gísli sýndi Víði í B-flokki á Landsmótinu 1986 og varð í 20 sæti. Hesturinn var seldur eftir mót til Noregs og keppti meðal annars á heimsmeistaramóti þar sem hann lenti í verðlaunasæti.
Víðir lónseraður á Höfðanum með gamla laginu
12.3.2010
Útreiðartúr á Mývatni
Sverrir Karlsson fararstjóri og Gísli
Við komuna í Hrútey
Boðið var upp á heitt kakó og smurt brauð
Berglind, Einar og Hraunar
7.3.2010
Hella í Tunnunni
Hér að neðan má sjá hana Hellu (Hraunu og Rökkvadóttur) í Tunnunni í Traðagerði í dag. Myndin tekin á símann minn. Allt stefnir í að hún verði hin glæsilegasta meri.
