|
Hrauna er sjötta folald Urðar. Eftir að hafa séð afkvæmasýningu á Orra frá Þúfu á fjórðungsmóti 1996 á Gaddstaðaflötum sannfærðist Gísli um kynbótagildi hans. Eftir samtal við Indriða Ólafsson á Þúfu á mótinu fékk Gísli pláss undir hestinn fyrir Urð og ári síðar fæddist Hrauna frá Húsavík.
Í uppvexti bar hún af öðrum hrossum, falleg og myndarleg. Hún var auðtamin og gerði allt fúslega sem hún var beðin um.Hún vakti mikla athygli þegar hún var sýnd 5 vetra á síðsumarsýningu á Gaddstaðaflötum 2002. Í aðaleinkunn fékk hún 8.44, þar af 8.68 fyrir hæfileika.
Til gaman látum við fylgja umsögn Þórðar um Hraunu, sem greinilega er í miklu uppáhaldi hjá honum: "Hrauna er mesti gæðingur af 5 vetra hrossi sem ég hef sest á. Gangrýmið og lundarfarið í henn er alveg einstakt og að auki er útlitið mjög gott, fóthá hryssa og glæsileg fram. Viljinn er eins og best verður á kosið, mikill og þjáll. Ég spái því að hún fái 9,30 í aðaleinkunn fyrir hæfileika ef hún verður sýnd árið 2004. Þetta er einfaldlega ótrúlegt hross."
Hrauna var sýnd á sýningum veturinn 2002-2003. Hún kom fram á Bautatöltinu á Akureyri 2003 og einnig vann hún Mývatn Open sama ár. Ætlunin var að sýna hana aftur í kynbótadómi en hún heltist stuttu fyrir landsmót 2004 og því var ekki til setunnar boðið og hún sett í folaldseignir. Hrauna á fjögur afkvæmi og þar af eru þrjú þeirra bleikálótt og eitt rautt.
|